Mikið uppbyggingarstarf hjá Bjargi íbúðafélagi

Deila

Hjá Bjargi íbúðafélagi hefur verið mikið og gott uppbyggingarstarf síðan það var stofnað af ASÍ og BSRB árið 2016. Stjórn Bjargs fékk leiðsögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra félagsins ásamt starfsmönnum þess um byggingarsvæði félagsins í Reykjavík og á Selfossi í sumar og gerður var góður rómur að.

Falleg götumynd Hallgerðargötu

Byrjað var á að skoða fallegt og skemmtilegt verkefni við nýja götu í Laugarneshverfi, Hallgerðargötu, sem kennd er við sögupersónu Íslendingasagna Hallgerði langbrók sem bjó í Laugarnesi. Götumyndin er litrík eins og sögupersónan sjálf. Gætt var að því að húsin væru umhverfisvæn og ódýr í bygginu en án þess að það kæmi niður á gæðum þeirra. Þau er að norrænni fyrirmynd og passa vel og passa vel við eldri húsin í hverfinu. Bjarg íbúðarfélag reisti 80 íbúðir í Hallgerðargötu við Kirkjusand í Laugarnesi, allt 2 til 5 herbergja íbúðir í tveggja hæða timburhúsum.

Næst lá leið verkalýðsforystunnar inn í Voga þar sem félagið er að reisa á besta stað fyrir ofan smábátahöfnina Snarfara 74 íbúðir númer eitt við Bátavog sem er nafn við hæfi. Frá Bátavogi er útsýnið fallegt upp í gróinn Elliðaárdalinn til suðurs og út með sundunum bláu til vesturs. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar á hausti komanda. Íbúðirnar eru af fjölbreyttum gerðum og stærðum. Allt frá stúdíóíbúðum upp í rúmgóðar 5 herbergja íbúðir. Allar íbúðirnar eru með góðum innréttingum og vel skipulagðar.

Silfurtjörn og Gæfutjörn

Því næst var haldið upp í Úlfarsárdal þar sem Bjarg byggir við Silfratjörn 82 leiguíbúðir á fögrum stað við Úlfarsfell og blasir fellið við þeim sem þar búa. Íbúðirnar eru stúdíóíbúðir, 2 herberja upp í 5 herberja íbúðir. Unga kynslóðin sem var að leik í góða veðrinu tók á móti verkalýðsforingjunum og benti þeim á hvar þau byggju og gaman væri að leika sér við Silfratjörn. Fleiri íbúðir við Gæfutjörn eru í byggingu og er áætlað að þær verði afhentar leigjendum í október.

Þá var ekið á Selfoss þar sem skoðað var timburhús við Heiðarstekk 1 sem er byggt úr svokölluðum kubbaeiningum sem framleiddar eru hjá SG húsum. Þar mun Bjarg bjóða 28 íbúðir til leigu og áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar nú í júní og síðar október.

Viðtöl og greinar

Fleiri greinar og viðtöl