2020 –
Samskiptastjóri og ritstjóri – Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu
Í starfinu felst ráðgjöf, ritstjórn, greina- og fréttaskrif á vef og í Tímarit Sameykis, umsjón með samfélagsmiðlum og samskiptum við fjölmiðla.
2017 – 2020
Grafískur hönnuður – Icewear
Hönnun auglýsinga, gerð birtingaáætlana, textagerð og vöruljósmyndun. Umsjón með hönnun á verslunum, bæði innra og ytra útliti þeirra. Skipuleggja og hanna markaðsherferðir í gegnum fjölmiðla og samfélagsmiðla hérlendis og erlendis. Umsjón með textaskrifum og markaðsefni auk þýðinga. Fókus á leitarvélabestun í textagerð.
2015 – 2017
Kynningarfulltrúi – Cohn&Wolfe Íslandi
Starfið byggðist ráðgjöf, textaskrifum, fjölmiðlasamskiptum og vöktun. Umsjón með samskiptum við birgja vegna framleiðslu auglýsinga fyrir blöð, tímarit og vefi. Umsjón með greiningum á vefum og samfélagsmiðlum.
2013 – 2015
Ráðgjafi – sjálfstætt starfandi
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Verkefnin fólust í ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana, t.d. textagerð fyrir markaðsefni og greina- og fréttaskrif. Vefumsjón og umsjón með samfélagsmiðlum.
2007 – 2013
Framleiðslustjóri – Viðskiptablaðið
Umsjón með skipulagningu og útgáfu Viðskiptablaðsins, Fiskifrétta ásamt aukablöðum með kröfu um sparnað, útsjónarsemi og gæða að leiðarljósi. Framleiðslustjóri bar einnig ábyrgð á starfsmannamálum; ljósmyndurum, prófarkalesurum og lausapennum. Auk þess hafði framleiðslustjóri umsjón með umbroti og hönnun og öllu öðru útliti útgáfunnar hjá fyrirtækinu.
2004 – 2007
Útgáfustjóri – Elísa Guðrún ehf.
Umsjón með útgáfu og rekstri: Tímaritið Hestar, Lifandi vísindi, Bo Bedre, Sagan. Skrifaði greinar og fréttir úr heimi hestamennskunnar, vísinda og sögu ásamt umsjón með þýðingum efnis og útliti tímaritanna sem gefin voru út og prentuð hér á landi. Náin samskipti við danska útgáfurisann Bonnier.
2000 – 2004
Gæðastjóri – FÍTON auglýsingastofa
Bar ábyrgð á að öll verk sem auglýsingastofan sendi frá sér stæðust kröfur fyrir birtingar í prentmiðlum, sjónvarpi og vefmiðlum. Þróaði og innleiddi verkferla til að viðhalda gæðastöðlum.
1991 – 2000
Prentsmiður – Morgunblaðið
Á Morgunblaðinu starfaði ég á mörgum deildum blaðsins; auglýsingadeild, umbrotsdeild og ljósmyndadeild. Þar fékk ég einnig að skrifa mínar fyrstu blaðagreinar sem birtust í blaðinu um framandi ferðalög.